Kærleikskleinu heimur :D

Velkomin ást :*

27.09.2009 14:37:16 / Lindaz

Awesome skemmtilegt blogg fyrir HÓFÍ!

BLOGG!




létt og laggot.. ekki of langt.. en hjúts skemmtilegt!


kv. Lindaz!


lag dagsins: Sumarsaga!
:haha::haha::haha::haha::haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.08.2009 13:32:49 / Lindaz

Nýjustu upplýsingar!

Góðan daginn :)

Jæjah.. núna hefur aldeilis margt gengið á undanfarið skal ég segja ykkur.. Snillingurinn hún ég steig á nagla 19 ágúst og þvílíkt annað eins vesen hef ég aldrei upplifað! Ég byrjaði á því að stokkbólgna og læti svo ég trimmaði uppá slysó um nóttina og fékk stífkrampasprautu og sýklalyf og svona fínerí.. svo varð hann verri og verri svo ég fór aftur 2 dögum seinna.. fékk þá þær upplýsingar að þetta væri í réttum farvegi og fékk teygjusokk.. svo þriðjudaginn í síðustu viku var sýklalyfið búið og ég ekkert skárri svo ég þurfti aftur uppá slysó.. þá voru teknar blóðprufur, myndatökur og læti og ákveðið að byrja að setja sýklalyf í æð! Svo ég fékk æðalegg og þau fyrirmæli að mæta á 8 klst fresti uppá slysó í dripp.. svaka stuð! Svo hitti é glækni 4 til að fá áframhaldandi mat og hann sagði að ég yrði lengi að jafna mig á þessu þar sem tá 2 væri farin í gott og langt frí.. enda get ég ekkert hreyft hana.. Það mun stafa af því að naglinn hefur rekist í beinið og sinar og hugsanlega taugar! *skemmtilegt* Svo ég hélt áfram í drippi og fékk síðasta skammtinn á laugardagsmorguninn! Þá hitti ég lækni númer 6 sem vildi að eg hætti í þessu.. sagði að yfirleitt væru tveir dagar nóg og ég væri nú búin með 5 daga svo hann lét mig fá annan skammt af sýklalyfjum og læti.. í kjölfarið af öllu þessu drasli er ég komin með eitthver kláða útbrot á hendurnar og klæjar viðþolslaust svo ég gleypi histasín og smyr á mig eitthverju kremi sem á að vera kláðastillandi og oná allt gleypi ég parkódín hægri vinstri til að minnka verkina! Svo bara haltra ég um á hækjum og ligg eða sit með löppina uppí loftið.. úber gaman að vera ég!

svo byrjaði skólinn í síðustu viku.. ég hef ekki getað mætt ennþá en er byrjuð að lesa og svona og lýst bara vel á! :) skemmtilegt að byrja aftur í námi og sona! :D

annars er ekki neitt úber dúber mikið að segja frá.. hef svo sem ekkert gert síðustu 12 daga nema gleypa töflur og fá dripp :P svo ég blogga þegar ég hef eitthvað smá merkilegra að segja! Leiddist bara í lærdómspásunni minni svo ég ákvað að henda nokkrum orðum hingað! :)

kv, Linda!


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2009 17:04:38 / Lindaz

Blogg fyrir Ástu K! :D

 Guten Tag!

Jæjah! Ásta Karen gerði kvörtun vegna bloggleysis svo ég ætla að blogga! :D

Lífið er bara assgoti gott kæru hálsar og kæru nef! Ótrúlegt en satt þá er ég að fara að byrja í skóla í haust :P langt síðan ég kláraði menntó og núna byrjar barasta háskólinn 27. ágúst! :haha: ég er orðin soldið spennt verð ég að viðurkenna :P hlakka til að svitna yfir námsbókum og í prófum og svona :haha::haha:

Svo er ég búin að eiga ammli! orðin 21 árs ellismellur! á ammælisdeginum sjálfum, sem var þriðjudagurinn 28. júlí, þá komu frænkur og frændur og amma í kaffiboð, svaka kósý :) svo síðasta föstudag bauð ég gellunum mínum í matarboð! Myndirnar af því koma bara á facebook.. nenni ekki að stússa í að setja hingað.. alltof tímafrekt! en já.. ég fékk margar flottar og góðar gjafir og er rosa rosa rosa sátt :)
Svo á laugardaginn síðasta fór ég í hommapartý til kærasta hans Binna! þvílíka flotta íbúð! pannt já takk! og á fullkomnum stað! 1 mín að labba í bæinn en færð samt ekki lætin frá bænum inn um gluggann! sjúklega gaman í því teiti en ég var edrú og ekki lengi því það var víst vinna daginn eftir :/ en ég mun bæta upp fyrir það næsta föstudag með heljarinnar teiti! :haha: þá ætla ég að detta ofan í áfengisflöskuna og drukkna þar sko :D :haha: dreg hófí með mér í svaðið og notla rest líka.. en aðallega hófí!

Trausti sæti er á vestfjörðum núna í eikkerjum firði þar sem er ekkert símasamband, rafmagn eða neitt svo ég sakna hans heavy! fór síðasta laugardag og verður í svona 10 daga.. hann er reyndar búin að gera sér tvær ferðir uppá fjall til að fá samband við mig af því hann er heimsins mesta krútt :) svo á hann ammli bráðum! þarf að fara að versla eikkað bleikt og sætt á hann ;);) :haha::haha:

En eins og ég segi! Lífið er bara ljúft og gott! Hendi kannski inn slúðri eða eikkerju álíka bráðlega :) þegar ég nenni ;)

kv, Lindaz ;)

lag dagsins; Mæja hí mæja hú - uppáhalds á busaárunum! :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2009 12:36:20 / Lindaz

Yndislega líf :)

Góðan daginn fallega fólk :D

Afsakið algjört bloggleysi undanfarið! Búið að vera brjáááálað að gera! Fyrst á fullu að læra undir inntökuprófið og svo byrjaði ég að vinna í 2 vinnum og það er heldur betur mikið að gera :P Annars held ég að inntökuprófið hafi bara gengið nokk vel.. allavega ekki með slæma tilfinningu.. en það kemur bara í ljos eikkern tíman í byrjun júlí :P nenni ekki að hafa áhyggjur af því núna :D :haha::haha: en jæja já..

Núna er ég sem sagt að vinna með fatlaða! á stað sem heitir Bjarkarás, sem er svona vinnustaður fyrir fatlað fólk og er bara 9-4 vinna á virkum dögum :) svo með því á sambýli í Víðihlíðinni aðra hvora helgi og eitthvað á kvöldin :) rosalega gaman og svaka fínt! Mæli eindregið með því að allir prófi að vinna með fatlaða eða gamla eða eitthvað svona :) þvílíkt gefandi og bara skemmtileg vinna!

Svo er spurningin núna hvort eg eigi að nenna að halda partý á föstudaginn eða hvort ég eigi bara að fara á mýrarnar.. þetta er allt saman rosalega flókið :P get ekki ákveðið neitt á meðan ásta planar og planar :P ekki sátt!

Annars er voða lítið að segja.. er bra að glápa á neighbours og bíða eftir að trausti vakni og fer svo að vinna klukkan 4.. voða rólegt eitthvað :)

Svoooo... bið bara að heilsa!

Bis Später :)
Lindaz ;)




» 10 hafa sagt sína skoðun

13.05.2009 16:01:19 / Lindaz

Já góðan og blessaðan daginn!

Hæj hó! hæj hó! við höldum út í skóg!

Góðan dag góðan dag glens og grín það er mitt fag! hopp og hí! trallalí! uppá nefið nú ég snýýýý!!!
hvað segiði gott í dag :D ég segi allt svona ljómandi gott :P haldiði ekki að ég hafi barasta keypt mér brumma á mánudaginn! Ég var búin að vera vakandi í einn og hálfan tíma þegar ég var barasta búin að skrifa undir endalaust magn af pappírum og búin að kaupa þennan sæta sæta brumma! :haha: þegar ég var að keyra á nýja brummanum mínum heim fékk ég svo feitt hláturkasst þvi ég var ekki búin að ná að fá mér morgunmat eða fara í sturtu eða neitt.. en samt komin með nýjan bíl.. útrás eða hvað!? allavena! Sjúklega sætur kóngablár Passat! fæddist árið 2000 og er búið að keyra hann um 167 þús km :) svaka flottur að innan sem utan og bra algjör pæjubíll! núna er bra að finna nafn á hann! Þóra! starta heilanum ;) þurfum kannski að vinna nokkrar vaktir á hrafnistu til að komast í gírinn :P

í dag er svo mánuður í partýið mitt! dagurinn eftir inntökuprófið.. öss.. minna en mánuður í það! sjittafokk.. og ég að letibykkjast að blogga.. no good nooo good.. o jæja! saga er ekki það merkileg :P allavega já! allir að taka frá 13. júní! þ.e.a.s ef mer finnst þú skemmtilegur.. þú sem ert að lesa þetta.. ef mér finnst þú leiðinlegur þá þarftu ekkert að taka 13. júní frá :D :haha::haha: allavega verður þetta auglýst betur síðar ;)

Annars fór ég um daginn með möggu að kaupa ís og þar hittum við ástu b og þeim leist svona líka vel á nyja brummann minn :p svaka svaka happy! og þá komst ég að því að það er hægt að kaupa 1 líter af bragðaref! 8| ef það er ekki bilun þá veit ég ekki hvað! svo sem fínt ef maður ætlar að drekkja sorgum sínum í ís eða eitthvað álíka.. en samt.. 1 líter! góðan og blessaðan daginn!! kannski fínt ef maður er að fá sér bragðaref 2-3.. ódýrara. en samt.. 1 líter!!! 1000 millilítrar!! er það ekki svoldið mikið af því góða? :p ég veit ekki!

ætli ég verði ekki að tjá mig um eurovision í tilefni gærdagsins.. ísland áfram.. já svei mér þá! ég sem hélt að enginn myndi kjósa okkur þar sem við erum litla fátæka ísland með icesave reikninga út um allt að gera alla í heiminum brjálaða.. en neinei.. öskrar ekki salurinn á fullu iceland iceland og eikkað.. 8|:$ ég fatta þetta ekki alveg.. þetta lag er nú ekki það heillandi og kjóllinn alveg hrææææðilegur.. reyndar flott sviðsmyndin! en ætli maður segi nú samt ekki "gó ísland!" á laugardaginn.. þó ég haldi nú með finnlandi, noregi og grikklandi :P ekkert smá ánægð með að finnland komst áfram! ég var nú alveg steinhissa að svíþjóð kæmist :S þvílíkt spangól sem það var nú.. en það var notla frekar mikið af grútleiðinlegum lögum að keppa í gær.. :P verður gaman að sjá þetta á fimmtudaginn! HEIJA NORGE!

eníveis ;)
ég ætla að snúa mér aftur að lærdóminum :P

Lindaz ;)

lag dagsins: Stolt siglir fleygið mitt - Á móti Sól


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2009 15:02:30 / Lindaz

Jöja!

Guten Tag!

Jæja, þá er kominn 6. maí! merkilegur tími skal ég segja ykkur! núna er ég hætt í vinnunni! og er því komin í rúmt 6 vikna "sumarfrí" sem felst í því að læra myrkrana á milli! djöfull er ég sátt! eftir síðustu vaktina mína sagði ég hátt og skýrt við húsið að ég myndi sko ekki sakna þess! :haha::haha: svo vaknaði ég áðan og þetta guðdómlega fallega veður í gangi svo ég ákvað að eftir hádegi myndi e´g hlamma mér út á pall og læra í blíðunni! og ég gerði það að sjálfsögðu.. skellti mér í hvítubuxurnar sem ná eila bra niður fyrir hné og hlýrabol og ætlaði aldeilis að njóta mín.. jæja.. ég naut mín ís vona 2 mín! þá komu skýin! og þau vara í svonaaaa... 5-10 mín, svo kemur sól í 2 mín.. svo mér er barasta orðið frekar kalt! komin í peysu og búin að vefja handklæði um lappirnar á mér því ég nenni ekki að skipta um buxur! svo já, ég er bitur! svo ég sit hérna í kulda að rembast við að læra sögu.. með athyglisbrest og finnst meira heillandi að horfa á býflugur heldur en sjálfa sögubókina :P algjört rugl! jæja, þessi vika hefur leiðinlega efnið, svo í næstu viku og vikurnar þar á eftir er bra líffræði, efnafræði, stærðfræði, eðlisfræði, íslenska og enska í fyrirrúmi :) þetta er stemming! svo er prófið 11. og 12. júní í ár! svo PARTEY!! 13. JÚNÍ ;)
annars er þessi dagur líka merkilegur að því leiti að fyrir 22 árum fæddist Hannes! til hamingju með daginn;) og fyrir 29 árum fæddist Bjarni! líka til hammó með ammó! ég myndi koma með eitthvað svaðalegt söguinnskot ef ég myndi nenna að leggja á minnið svona dagsetningar tengdar sögu.. en þar sem ég nenni því ekki þá verðið þið að lifa með því :D

annars er bra allt fínt að frétta.. er að fara að setja bílinn minn í auglýsingu og skoða aðra bíla og svona :) á morgun fer ég út að borða með liðinu og svona fínerí og skemmterí! jeij!

en perlan mín, snillingurinn sem hún er, er búin að festa sig eina ferðina enn í kringum stóra tréð svo ég verð víst að fara að losa hana og halda svo áfram með söguna.. :) tjái mig síðar!

adioz ;)
Lindaz :haha::haha:

lag dagsins: Fairytale - Norway Eurovision 2009!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2009 13:53:59 / Lindaz

Þessi fallegi dagur!

Guten Tag meine Liebe Laute!

Jæjah.. þá er síðasta vinnuvikan mín að hefjast á morgun! eftir að vinna 2 kvöldvaktir og 3 næturvaktir og svo er ég barasta hætt! labba út, skelli á eftir mér og ulla svo á húsið! :haha::haha: held að það sé algjörlega komplítlí málið! ;)

Annars er bara allt ljómandi að frétta! Kosningarnar yfirstaðnar og ég held að ég hafi bra ekki upplifað jafn mikla spennu í kringum stjórnmál áður.. alveg meiriháttar fyndið! ég sem hef alltaf gefið mig út fyrir að vera á móti stjónrmálum :P og ég er svona rosa ánægð með úrslitin! held að það sé kominn tími til að taka upp eitthvað annað en hægri stjórn! sakar allavega ekki að sjá hvað þessi stjórn getur gert fyrir okkur og sjá hvað ESB hefur fram að bjóða.. það er þá bara hægt að kjósa það í burtu ef fólk vill :)

Svo á föstudaginn var smá afmælis-matarboð hjá möggu :) svaka fínn matur og kósýtime.. bara spjall og blaður og svona :) smá fengið sér í glas en það var nú ósköp lítið!

En núna fer námið bara að taka við.. sit einmitt núna úti, í þessari stórkostlegu blíðu að grillast á bakinu og að læra :)

svoooo.. ég kveð að sinni!

adioz ;)
Lindaz :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2009 12:22:57 / Lindaz

Fröhliche Ostern!

Góðan og blessaðan daginn!!


Jæja! kominn 18. apríl.. aldeilis sem tíminn flýýýgur áfram! Næsta föstudag kemur Ásta Birna heim frá þýskalandi og þá ætlar magga að bjóða okkur í mat og svona skvísutime ;) svo er sálin með ball á laugardaginn sem við Magga ætlum að skella okkur á :haha::haha: feirra fólk er að sjálfsögðu velkomið með! Svo á ég bara eftir að vinna 9 vaktir í viðbót og svo er ég hætt! djöööfull er ég ánægð með það! finally segi ég nú bara!

Svo er ég að fara að kaupa nýjan bíl takk fyrir jónsson! Ætla að setja minn í skoðun núna í næstu viku og svo var Hjörtur, frændi þóru dísar, búinn að bjóðast til að taka hann og bóna hann, smyrja allar hjarir og svona fínerí :D fyrir pinku lítinn pening! ætla heldur betur að nýta mér það og henda honum svo´a sölu um mánaðamótin! Svo er bra stefnan tekin á að vera búin að kaupa bíl í lok maí allavega :haha: happy time sjáiði til ;)

Annars er svo sem lítið að frétta.. mér leiðist bara í vinnunni og hef ekkert betra að gera en að blaðra eitthverja tóma þvælu hér :D :haha::haha: hmm jááá.. jæja.. þetta er alveg nógu langt til-að-drepa-tímann-blogg! :haha::haha:

tjái mig eftir næstu helgi! ;)

Lindaz ;)

lag dagsins: Viltu hitta mig í kvöld? - Greifarnir


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.04.2009 17:28:56 / Lindaz

Sumarið 2009!

Góðan dag!


Jæja kæra fólk! núna fer að koma að því að við þurfum að ákveða hvort skal halda á þjóðhátíð í eyjum eður ei! það þarf víst að kaupa miða bráðlega og pannta far í herjólfi og soddan! Svo! ég nenni ekki að spurja alltaf aftur og aftur og aftur.. svo núna spyr ég! HVER ER TIL Í AÐ FARA Á ÞJÓÐHÁTÍÐ 2009??? skrifa í comment bra.. og ef þið þekkið eikkern í eyjum sem er til í að leyfa að tjalda í garðinum hjá sér.. endilega spurjið!!! fólk sem hefur farið þanna segir að það sé eiginlega ekki mannahæft að vera í dalnum :P ;)
svo já.. farið að ákveða ykkur góða fólk!!!

svo þurfum við að fara að planileggja næstu bústaðferð og svona lagað! gengur ekki hvernig þetta er! þegar mamma og pabbi eru farin að djamma oftar en ég þá er þetta orði andskoti sorglegt.. svoég hlusta ekki á fleirri væl heldur vil fá meira djamm!! sama hvort það er kósýtime djamm, pottapartý, bæjarrölt, ball, bústaður, útilega.. what so ever! DJAMM!! ég er 20-21 árs.. ekki 50! þó reyndar að mamma og pabbi eru bæði orðin 50 og þau djamma slatta miðað við mig.. en samt! þið fattið point-ið mitt!

eníveis.. commentið!

Lindaz ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.04.2009 11:41:55 / Lindaz

2. apríl 2009!

Já góðan daginn gott fólk!

Þá er bara Apríl mættur á svæðið.. í dag eru 71 dagar í inntökuprófið! spekúlerið í því! og núna er búið að opna fyrir skráningu í prófið og námskeiðið fyrir prófið svo ætli maður fari ekki að henda sér á skráningu :D :haha::haha: ég er bra orðin spennt held ég.. mikið mál kannski, en spennandi :P en nóg um það!

Hrólfur fermdist siðasta sunnudag.. gekk bara ósköp vel! Voru bara 15 að fermast svo athöfnin var bra rúmur klukkutími og ég gæddi mér á líkama og blóði krists.. svakaleg stemming!! Reyndar byrjuðu lætin hjá okkur á fimmtudaginn síðasta.. mamma og pabbi þrífandi eins og brjálæðingar, svo á föstudeginum fórum við að ná í plentí af stólum og borð og læti.. svo á laugardeginum var maður rekinn framúr með látum klukkan 9, hennt hjónarúminu út í bílskúr og svefnherbergið þrifið svaka vel og komið upp borðinu.. svo komu kristín og sibba að skreyta borðið sem var líka svona ofsa flott :P eila alveg eins og mitt bara blátt í staðin fyrir bleikt :haha::haha: Svo byrjaði sunnudagurinn klukkan hálf 9, drifið sig í sturtu og læti, svo myndataka, svaka fín mynd tekin af mér, jóhannesi og hrólfi, svo bra brummað aðeins um arnarnesið og ég fann mér framtíðarhús :D :haha: svo brummuðum við í kirkjuna, hentum hrólfi inná bessastaðaskrifstofuna þar sem hann klæddi sig í kirtil og svona.. svo var ég mjög pro og sá um allar myndatökur og upptökur í athöfninni eins og heima.. veislan byrjaði svo klukkan 4 og kom fáránlega mikið af fólki! Ótrúlega gaman að hitta allt þetta fólk aftur! suma hefur maður ekki séð síðan eg var 11 ára og bara rugl :D :haha::haha: svo var maturinn alveg æðislegur, enda sá Ingvar frændi um matinn, og kristín og magga hjálpuðu til í eldhúsinu! þetta var bra ágætis dagur þrátt fyrir gígantíska þreytu um kvöldið!!

Á mánudaginn fór ég svo í endajaxlatöku! ó já.. ég er orðin gömul víst.. og kallinn tók bara alla 4 í einu! ég ætla ekki að lýsa neitt hvernig hann fór að þessu eða hvernig þetta gekk fyrir sig eða neitt því fólk er jú mis viðkvæmt og ég ætla ekki að hræða fólk frá þessu nema þa ðbiðji sérstaklega um það á msn! :D :haha::haha: en líðan eftir á er HELVÍTI!! ég bólgnaði upp eins og blaðra og leit út eins og fílamaðurinn.. með bláan marblett frá kinnbeininu og niður á háls!! get opnað munninn um svona 1cm, ekkert tuggið og blablabla sko.. svo má ég ekki liggja neðar en í 45 gráðum, ekki borða neitt heitt né kalt, ekki fljótandi fæðu heldur fasta fæðu og hana á ég að stappa eða mauka sem gerir matinn nú ekki girnilegan! Svo gleypi ég bara parkodin og íbúfen hægri vinstri til að deyfa verkina.. og svo ofan á allt saman er ég komin með kvef aftur og hita.. og ég get ekki talað og það er jú eitt af hobbíunum mínum!! ;) þannig ég get ekki beðið eftir að þetta lagist.. fer á mánudaginn að láta taka saumana og þá verð ég vonandi búin að þessu öllu bara.. langar ekki mikið að mauka páskasteikina! :haha::haha::haha:

Annars var ég að spá svoldið um daginn.. ég var að hlusta á FM957 og ég hef tekið eftir því að í lögum þar sem söngvarinn segir God eða Fuck eða eitthvað þannig þá er það tekið út og bra kemur tónlistin undir eða þannig.. en svo er eitt lag sem er eiginlega bara eitt orð og það er Bitch.. veit ekki hvað þetta lag heitir eða hvort þið fattið hvaða lag ég á við en það er eitthvað svona "shes not my bitch" á bara repet liggur við allt lagið! fáránlega leiðinlegt lag.. en allavena.. af hverju er í lagi að segja að eitthver stelpa/kona sé bitch hægri vinstri en ekki segja guð eða ríða? mér finnst nú miklu siðsamlegra að segja guð eða ríða heldur en að kalla eitthverja stelpu tík.. mér finnst þetta senda kolröng skilaboð út í heiminn! Eins og það sé ekkert mál að tala niðrandi til kvenfólks en guð hjálpi þér ef þú nefnir guð á nafn? þetta er hallærislegt.. skil ekki svona rugl sko! endilega tjáið ykkur um þetta allt saman! :haha::haha:

annars er það nú ekki meira.. ég ætla að fara að fá mér egg og eitthvað svona sem ekki krefst þess að ég tyggi eða opni munninn að viti svo.. tjái mig seinna!

lag dagsins: Vegbúinn - KK

p.s. búin að setja inn myndir frá aðfangadegi, jóladegi/annan í jólum og áramótunum í myndir 2008 og svo eru að koma inn myndir frá afmælinu hennar dídí og smá af perlu kerlu í 2009 :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2009 16:48:28 / Lindaz

Fjölbreyttni..

Já góðan daginn!!


Síðasta bloggið mitt fjallaði mikið um hvað það væri enginn með neitt hugmyndflug á þessu blessaða landi okkar sem sýnir sig jú í nöfnunum á bönkunum.. ég komst að því að fjölbreyttnin kemur fram í veðrinu! þess vegna er svona takmarkað hugmyndaflæði á nýjum nöfnum! Eins og í fyrradag.. þegar ég vaknaði var brjálað rok og leiðindi.. svo á leiðinni í vinnuna kom rigning.. svo allt í einu var komin sól.. svo kom aftur rok en sólin svona kom og fór.. svo var hið besta veður á meðan ísland rússtaði eistlandi í handboltanum, enda ísland að gera góða hluti þá.. svo eftir leikinn labbaði ég inní búð í þessu góða veðri.. þegar ég labbaði út var komin snjókoma! þetta var alveg stórfurðulegt.. svo þarna sjáum við fjölbreyttnina! ætti að hafa bara gott veður og meiri fjölbreytni í bankanöfnum og sleppa vonda veðrinu :D allavega finnst mér það! ;) :haha::haha:

jahh.. annars eru bara gleðitímar framundan! hrólfur fermist núna um helgina og þá hættir þetta eilífðar fermingarstress loksins.. farið að bögga mig endalaust maður! allt fullt fa drasli í frystinum og blablabla sko.. svo á ég bra 27 vaktir eftir, páskarnir að koma sem verða á mýrunum sem er bara æðislegt! styttist í inntökuprófið og þar af leiðandi sumarið! brjálað djamm planað 24. apríl! þá verður ásta b komin heim og magga heldur partey í tilefni prófloka og afmæli síns! þá fær ásta að vita hver hinn frægi Trausti er ;) þetta er svo skemmtilegt líf sjáiði til :D :haha::haha: verst hvað mig lagnar drullu mikið til útlanda! það verðu bara að bíða til 2010 hinsvegar! fer bara í sólbað hérna heima ;)

annars hef ég svo sem ekki margt að segja.. fer að drulla inn myndum frá jólum/áramótum/afmæli dídíar um leið og ég nenni :p

adioz amingos ;)
Lindaz :D :haha:

lag dagsins: Er þetta ást - Páll Óskar


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2009 13:04:10 / Lindaz

Tími skítugra bíla á Nýja-Íslandi!

Guten Tag meine Liebe!

Wie geht's? Héðan er allt gott að frétta! Eins og er sit ég í vinnunni og var komin með störu af leiðindum svo ég ákvað að blogga.. enda orðið svoldið langt síðan síðast! Svo var ég að telja það að ég á bara 37 vaktir eftir! :haha::haha: ég ætla að halda partý þá.. eða eila ekki fyrr en í júní.. en samt! er svo spennt!

En já, eins og fyrirsögnin gefur til kynna þá er tími skítugra bíla núna á fullu! Þessi yndislegi vetur okkar íslendinga orsakar það að ég eyði múltí monní í rúðupiss! Það væri ansi fræðandi að taka saman hversu mikið íslendingar pissa á bílana sína á tímabilinu nóvember-apríl.. eða hversu oft þeir þrífa bílana og hversu mikið af tjöruhreinsi selst! já svei mér þá.. ég held að pabbi sé farinn að þrífa bílana í hverri viku! Ég verð samt að viðurkenna að þetta veður er fínt! og þessi vetur er búinn að vera alveg ágætur.. ekki svona brjálæðislegt veður eins og var í jan/feb 2008.. ætli það hafi kannski verið rokið á undan storminum (bankahruninu)? og núna er lognið á eftir storminum.. hmm.. já ég er bara ansi ´klár :D *hrós fyrir þetta Linda!*

Annars stendur líka í fyrirsögninni Nýja-Ísland.. ég, eins og flestir aðrir, les fréttir um það hægri vinstri hvað sé hægt að gera til að endurbyggja landið og orðsporið og jadder jadderí ja... ég held að það sé bara best að skipta um nafn á landinu! alveg eins og bankarnir gerðu.. íslandsbanki-glitnir-nýi glitnir-íslandsbanki, landsbankinn - nb1, búnaðarbankinn-kbbanki-kaupþing-nýja kaupþing! hugsði ykkur! öll þessi nöfn á þessa blessaða banka bara síðan ég man eftir mér! og ég hef nú ekki verið lengi með pening í banka.. já svei mér þá! ég ætla allavega að skíra landið okkar Nýja-Ísland í takt við bankana, því ég veit ekki til þess að Ísland hafi heitið eitthvað annað en Ísland hér áður fyrr.. allavega ekki sem ég man eftir núna! endilega komið með hugmynd í comment yfir nýju nafni :haha: kannski ættum við að nefna það núna Sólland eða Hitaland.. svo fólk hætti að halda að við búum í snjóhúsum.. hmm.. hvað finnst þér?!

Annars hefur svo sem plentí verið að gerast undanfarið.. dídí átti ammæli 14. feb og við fórum að djamma! svaka stemming í gangi og fínerí :) því miður fékk dídí eitthvað í mallakútinn svo hún kom ekki niðrí bæ svo það endaði bara með því að ég, magga og binni þvældumst um bæinn í leit að Eddu báru! skemmtilegt kvöld samt! ég, magga og þóra gáfum dídí líka way awesome gjöf með bleikt þema! og svölustu köku sögunnar ;) set inn myndir bráðum.. þegar ég nenni :P svo helgina eftir það fór trausti á þorrablót og tókst eitthvern megin að steypast niður stiga og rússta á sér öxlinni.. svo han er bara í veikindafríi með bilaða hendi að bíða eftir að komast að í ómskoðun greyið :S svo er pabbi búinn að fara á aðgerð á hnénu og er heima í veikindafríi og hrólfur braut á sér viðbeinið á öskudaginn.. allir að slasast.. ég hef aldrei viljað vera hjúkka! ég vil vera læknir! svo fólk hættið að slasast! ;)

Hmm já.. ég ætlaði að segja eitthvað meira en ég bara man ekki hvað.. Allavega er lífið bara gott!
Verðbólgan að minnka, slasaða fólkið að batna, meðferðin hjá tomma að virka, ég að fara að hætta og byrja að læra undir lækninn.. allt gott! Svo ég held að ég kveðji bara að sinni..

Adioz amingos!

lag dagsins: Það amar ekkert að - Sálin


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2009 23:55:50 / Lindaz

8. febrúar 2009!

Hæj hæj!

Jæja.. kominn 8. febrúar á þessu herrans ári 2009! Aldeilis margt verið að gerast undanfarið á þessu blessaða landi okkar!
Brjáluð mótmæli ala íslendingar, sem sagt fólk með skyr og egg ;) fyrir utan notla nokkra vitleysinga sem vilja bara fá æsing! en já.. loksins báru mótmælin eitthvern árangur og ríkisstjórin féll!! LOKSINS! er búið að sópa sjálfstæðisflokknum í burtu, koma með nýja stjórn í fjármálaeftirlitinu og allt í vinnslu í seðlabankanum! ég verð þó að segja það að þessi Eiríkur og Davíð Odds eru bara hálfvitar! Sorry en það er bara þannig! Ég verð nú bara að segja að ég er aaaassgoti fegin að vera ekki tengd þeim á neinn hátt :p þvílík skömm sem fylgir því þessa dagana t.d. að vera dóttir Dabba odds! uss.. pannt ekki!!
En nóg af leiðinda stjórnmálunum ;)

Hjá mér er bara allt gott að frétta! Kristín mín á afmæli næsta laugardag á sjálfum Valentínusardeginum svo þá verður auðvitað djammerí slammerí! svo fór ég á kaffihús með jóa og dídí um daginn.. svaka kósý :) eitthvað sem þarf að gerast oftar! Svo er ég búin að segja upp og síðasti vinnudagur verður 3. maí!! ég hlakka svoooooo til! liggur við að ég telji aftur á bak :P ljótt kannski að segja þetta en andskoti djöfulsins fokking ógeð þessi svæðisskrifstofa reykjavíkur! ekkert nema tómir fávitar sem vinna á skrifstofunni þar og bara prump og frat! fjúff.. þessi pirringur over :P
svo er ég að fara að byrja að læra undir inntökuprófið! saga og félagsfræði verða kláruð í febrúar.. íslenska, enska og sálfræðin í mars og svo fer apríl og maí í að læra raungreinarnar (stæ, líf, efn og eðl).. svo ætla ég að kíkja bra á almenna þekkingu á námskeiðinu sem ég ætla á fyrir prófið :) vonandi blessast þetta svo bara allt saman!
Svo er ég komin með nýtt símanúmer! Ef þú vilt vita það þá verðuru að spurja og ég segi þér það ef mig langar að þú hringir í mig :D nú ef ekki.. þá ertu leiðinleg/-ur ;) :haha::haha::haha:

Annars ætla ég að halda áfram að horfa á one tree hill og tala við traustann minn :)

Tjái mig eftir ammælið hennar dídí ;)

lag dagsins: Just dance - Lady Gaga

adioz amingos :haha:
Lindaz :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2009 18:31:10 / Lindaz

Hallóó hallóó!

Hæj my luvs!

Jæja!  Þá er bra kominn 18. janúar.. djöfull líður þetta hratt! örugglega alltaf að segja þetta en samt.. líður hratt! kemur mér alltaf á óvart! :$

Jáh, núna er ég búin að fá fullt af glósum frá ástu karen :haha::haha: búin að prennta út alveg heilan frumskóg ;) og raða í möppur og svona svaka finerí! svo á morgun er ég að fara uppí háskóla íslands að tala við svona fólk sem veit svona hluti um fullt af hlutum :D :haha::haha: dídí ætlar held ég að koma með mér.. hringi í hana þegar ég er búin að tala við trausta ;)

Annars er bra allt fínt að frétta.. ætla að skila uppsagnarbréfinu í næstu viku :) og svo er ég að fara að byrja að læra bráðum :haha: hlakka soldið til þess :P svo þarf maður að fara að drulla trausta af stað í ræktinni.. hann fór út að hlaupa í gær og dó næstum því að eigin sögn ;) meiri rugludallurinn!!

Svo var Jói spói að segja mér að hann var í aðgerð um daginn.. fékk botnlangakasst greyið! svo hann var bra rólegur um helgina, ekkert djamm og ekki neitt :P ég er farin að vilja djamm! þetta er nú meira ruglið.. þóra bauð mér reyndar í teiti til frikka á föstudaginn en ég var að dreeeepast í tönninni svo ég bra treysti mér ekki :S :$ meira vesenið því mig langar svo að djamma! verðum að fara að djamma bráðum.. þetta gengur ekki! nú þegar kristín er hætt í skólanum er engin afsökun!!

Svo átti Ásta B afmæli á föstudaginn var! Varð 21 árs pían! djöfull er maður orðinn gamall :S þetta er alveg ferlegt.. ussumluss! Svo er kristín bráðum að verða ellismellur.. þetta er alveg..

Annars var gamla ég svaka dulleg í gær! þvoði 4 þvottavélar, tók svaka fínt til í skúffunum mínum.. dreif trausta út í hagkaup, vakti hann svo áðan og sendi hann í bónus.. ég er svo skemmtileg ;)

Annars er ég farin að rugla einum of mikið svo ég held ég fari bra að slútta þessu!

Lindaz ;)

lag dagsins: Kanínan - Sálin



» 11 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 20:15:01 / Lindaz

Nýtt ár! 2009!

Hæj ástirnar mínar! :*

Jæja! Gleðilegt nýtt ár! Fyrsta bloggið á nýju ári :)

Já.. gamlárskvöld var bara fínt :P nenni samt ekki að fara neitt nánar út í það annað en að ég skemmti mér bara aldeilis ágætlega :) Vonandi var ykkar gamlárskvöld eins skemmtilegt og mitt! :D:haha::haha:

Annars er ég bara rosa happy að nýtt ár sé komið! Fullt að gerast á þessu ári og vonandi bara skemmtilegt stöff :) ég er allavega búin að setja saman lista yfir bækur sem ég þarf að útvega mér til að læra undir læknisfræðina og ég fæ fleirri glósur hjá ástu k um helgina svo þetta stefnir allt í risa stafla :) svo er bara að drekkja sér í þessu og vonandi komast inn! :haha::haha: Annars er ég eiginlega búin að ákveða að fara í lyfjafræði ef ég kemst ekki inn í lækninn.. það er allvega líklegast eins og er :P ég er orðin ekkert smá spennt yfir að vera að fara að læra og allt þetta.. alveg komin tími á það! Ætlaði að kaupa nokkrar bækur í dag en er bra búin að vera með bullandi hausverk og ömuleg svo ég geri það bara um helgina eða eftir helgi og byrja svo að stúdera í næstu viku! :haha::haha:
Svo ætla ég að kaupa mér kort í sporthúsið um helgina og byrja þar á fullu ;) búin að vera að ræða við Trausta og það er komin svoldill keppnisandi upp.. svo eins gott að standa sig! Svo er hann núna að segja mér að drullast til að taka til og hótar að taka sjónvarpið mitt eftir 2 daga ef ég verð ekki búin að taka til! Meiri kjáninn ;) Spennandi að sjá hvernig þetta endar :haha::haha:
Svo að sjálfsögðu ætla ég að hafa fullt fullt af fjöri! djamma, ferðast, vonandi kíkja til þýskalands til ástu b, fara á þjóðhátíð og svona :) Þetta ár stefnir allt í svaka skemmtun! :haha::haha:

Annars fór ég út að borða og í bíó um síðustu helgi með ástu b og kristínu! vorum að kveðja skvísuna.. bara svaka kósý :) öfunda hana samt alltof mikið! meira ruglið! iss piss :P svo fór ég líka í búðarráp með múttu síðustu helgi og þar eyddist alveg góð slumma af pening ;) :$ en! keypti slatta af flottu svo það er allt í gúddí :P

Annars er lítið að frétta.. er bra að finna mér skemmtun svo ég sleppi við að taka til ;) er bara að fara á næturvakt á eftir svo nóttin fer í að lesa og hafa það kósý :D Svo ég heyri í ykkur seinna folar og folynjur ;)

Lindaz is out!

lag dagsins: Er þetta ást - Páll Óskar


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22
Heimsóknir
Í dag:  22  Alls: 86241
Könnun
Hvað ert þú?









Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Tyrkland! :D:D:D:D
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1305 dögum
Ég verð 20! :D
Klukkan